Stök frétt

Umhverfisstofnun hefur unnið tillögu að nýju starfsleyfi fyrir Matís ohf. til framleiðslu á allt að tveimur tonnum á ári af lagardýrum (öll dýr með kalt blóð sem lifa og geta afkvæmi í sjó eða fersku vatni, s.s. fiskar, lindýr, krabbadýr og skrápdýr) til rannsókna í starfsstöð sinni að Árleyni 2a, 112 Reykjavík. Tillagan ásamt umsókn rekstraraðila verður aðgengileg á vefsíðu Umhverfisstofnunar á tímabilinu 31. október til 28. nóvember 2018.

Um er að ræða lítið umfang eldis í tilraunaskyni. Umhverfisstofnun telur að mengun verði aðallega í formi lífræns úrgangs frá eldinu en fráveita þess fer í gegnum fastefnasíu og vatnshreinsibúnað og þaðan inn á veitukerfi Reykjavíkurborgar. Að mati stofnunarinnar, m.t.t. eðlis og umfangs starfseminnar, eru áhrif mengunar minniháttar og afturkræf og munu því ekki hafa varanleg áhrif á umhverfið en jafnframt er hægt að grípa til aðgerða ef aðstæður breytast með ákvæmum í starfsleyfi.

Skipulagsstofnun ákvarðaði að starfsemin væri ekki háð mati á umhverfisáhrifum í ákvörðun sinni dags. 13. júlí 2017.

Athugasemdir við tillöguna skulu vera skriflegar og sendar Umhverfisstofnun. Frestur til að skila inn athugasemdum er til 28. nóvember 2018.

Tengd skjöl:

Tillaga að starfsleyfi

Umsókn

Matsskylduákvörðun