Stök frétt

Umhverfisstofnun hefur unnið tillögu að starfsleyfi fyrir olíubirgðastöð Olíudreifingar ehf. á Eiðinu í Vestmannaeyjum. Ekki hefur verið birt deiliskipulag fyrir þann stað sem þessi stöð stendur á en Umhverfisstofnun er kunnugt um að það er í vinnslu verður líklega birt alveg á næstunni.

Umhverfisstofnun hefur ekki hug á að hafa opinn kynningarfund um tillöguna en berist ósk um fund verður það endurskoðað.

Athugasemdir við starfsleyfistillöguna skulu vera skriflegar og sendast á Umhverfisstofnun. Frestur til að skila inn athugasemdum er til 19. janúar 2018.

Tengd skjöl