Stök frétt

Veitingastaðurinn Nauthóll hefur nú fengið vottun Norræna umhverfismerkisins Svansins til staðfestingar á góðum árangri í umhverfismálum. Nauthóll er fyrsta íslenska veitingahúsið til að fá Svaninn en einnig hafa kaffihús Kaffitárs hlotið Svaninn fyrir veitingarekstur. Nauthóll hefur frá upphafi lagt mikla áherslu á tengingu við náttúruna, hollustu og umhverfismál. Með því að sækja um Svansvottun tekur Nauthóll skrefið til fulls og því gefst nú landsmönnum tækifæri til þess að njóta matar á umhverfisvottuðum veitingastað í fyrsta skipti á Íslandi. Svansvottun veitingastaðarins tryggir að Nauthóll er í fremstu röð veitingastaða hvað varðar umhverfisvitund og þar er unnið markvisst að því að lágmarka neikvæð áhrif á umhverfi og heilsu.

Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra afhenti Guðríði Maríu Jóhannesdóttur, framkvæmdastjóra Nauthóls, Svansleyfið á veitingastaðnum sjálfum að viðstöddu fjölmenni. Ráðherra óskaði Nauthól til hamingju og hvatti starfsmenn Nauthóls til að vera stolt af árangrinum því með starfi sínu væru þau stuðla að grænna samfélagi og bættum heimi. Svansvottuð fyrirtæki eru ekki bara vaxandi afli í íslensku atvinnulífi heldur eru þau samfélagslega mikilvæg fyrirtæki sem sýna viljan í verki og eru öðrum fyrirtækjum gott fordæmi. Nauthóll hlýtur Svansleyfi númer 22 og bætist þar með í ört stækkandi hóp Svansleyfishafa á Íslandi.

Svansmerking fyrir veitingahús

Kröfur Svansins fyrir veitingastaði eru mjög strangar og fjölbreyttar þar sem þær ná til flestra þátta starfseminnar:

  • Lögð er áhersla á ábyrg innkaup og hvatt er til þess að valdar séu umhverfisvottaðar vörur þar sem það býðst.
  • Uppfylla þarf strangar kröfur um notkun kemískra efna við ræstingar
  • Fylgjast náið með orku- og vatnsnotkun.
  • Flokka þarf úrgang í að minnsta kosti fjóra flokka.
  • Ákveðið hlutfall matvæla skal vera lífrænt ræktaðog hvatt er til noktunar á matvælum sem eru framleidd í nærumhverfi.
  • Gerð er krafa um reglulega þjálfun og fræðslu starfsmanna ásamt ferlum til að stýra umhverfisstarfi.
  • Tryggt er að fyrirtækið uppfylli öll lög og reglugerðir sem eiga við starfsemina.

Norræna umhverfismerkið Svanurinn

  • Svanurinn er opinbert umhverfismerki Norðurlandanna sem byggist á óháðri vottun og skilyrðum sem taka tillit til alls lífsferils vöru og þjónustu. Tilgangur Svansins er að ýta undir sjálfbæra þróun samfélagsins svo að komandi kynslóðir hafi jafna möguleika og við til að mæta þörfum sínum. Alls er hægt að votta um 70 mismunandi vöru- og þjónustuflokka.