Stök frétt

Þann 13. ágúst 2012 gaf Umhverfisstofnun út starfsleyfi fyrir starfsemi Íslenska gámafélagsins ehf. í Hellislandi, Sveitarfélaginu Árborg. Tillaga að starfsleyfinu var auglýst á tímabilinu 6. júní - 1. ágúst 2012 en Umhverfisstofnun bárust engar athugasemdir við hana. Samkvæmt hinu nýja starfsleyfi er Íslenska gámafélaginu heimilt að taka á móti allt að 15 þúsund tonnum af úrgangi á ári til meðhöndlunar, þ.e. flokkunar, forvinnslu, umhleðslu, pökkunar, geymslu og jarðgerðar, og gildir leyfið til næstu sextán ára. Eftirlit með starfseminni er í höndum heilbrigðisnefndar Suðurlands.