Stök frétt

Umhverfisstofnun auglýsir tillögu að starfsleyfi fyrir Arnarlax ehf. fyrir kvíaeldi í Arnarfirði. Tillagan gerir ráð fyrir heimild til rekstraraðila til að framleiða allt að 3.000 tonn af laxi á ári í sjókvíum á þremur stöðum í Arnarfirði.

Skipulagsstofnun úrskurðaði þann 24. apríl 2011 að framleiðslan sé ekki líkleg til að hafa í för með sér umtalsverð umhverfisáhrif og skuli því ekki háð mati á umhverfisáhrifum.

Sérstök greinargerð hefur verið unnin vegna auglýsingarinnar þar sem farið er yfir ýmis sértæk atriði sem varða auglýsingu á þessari starfsleyfistillögu. Í greinargerðinni kemur fram að Umhverfisstofnun hefur aflað gagna um svæðin þar sem gert er ráð fyrir að eldið verði staðsett. Það var gert með því að leitað var álits Fjórðungssambands Vestfirðinga, Heilbrigðisnefndar Vestfjarða og Orkustofnunar um hvort upplýsingar liggi fyrir hjá stofnununum um nýtingu svæða sem gæti stangast á við þá starfsemi sem hér um ræðir á þeim svæðum sem tilgreind eru í starfsleyfistillögunni. Einnig var óskað eftir umsögn Heilbrigðisnefndar Vestfjarða um þau drög að starfsleyfistillögu sem voru í vinnslu.

Starfsleyfistillagan mun liggja frammi ásamt umsóknargögnum á skrifstofu Vesturbyggðar, Aðalstræti 63, Patreksfirði, á tímabilinu 9. desember 2011 til 3. febrúar 2012.

Starfsleyfistillögu ásamt umsóknargögnum, áðurnefndri greinargerð Umhverfisstofnunar, umsögnum og öðrum gögnum má sjá hér að neðan. Öllum er frjálst að gera athugasemdir við starfsleyfistillöguna en þær skulu vera skriflegar, undirritaðar með nafni og heimilisfangi og sendar Umhverfisstofnun.

Frestur til að skila athugasemdum er til 3. febrúar 2012.

i. Tillaga Umhverfisstofnunar að starfsleyfi

ii. Umsókn um starfsleyfi (tilvísanir eiga við um matsskyldufyrirspurn)

 

iii. Matsskyldufyrirspurn frá Arnarlaxi ehf. til Skipulagsstofnunar

iv. Umsögn frá Fjórðungssambandi Vestfirðinga vegna Fjarðalax ehf. og Arnarlax ehf. að beiðni Umhverfisstofnunar ásamt kortum

v. Umsögn Orkustofnunnar vegna Fjarðarlax ehf. og Arnarlax ehf. að beiðini Umhverfisstofnunnar

vi. Umsögn Heilbrigðiseftirlits Vestfjarða að beiðni Umhverfisstofnunar

vii. Greinargerð Umhverfisstofnunar með auglýstri tillögu