Stök frétt

Hótel Rauðaskriða í Aðaldal hefur nú fengið vottun Norræna Umhverfismerkisins Svansins til staðfestingar á góðum árangri í umhverfismálum. Strangar kröfur Svansins tryggja að hótelið er í fremstu röð varðandi lágmörkun neikvæðra umhverfisáhrifa frá starfseminni.  Rauðaskriða er eina hótelið á Íslandi með Svansvottun, en alls bera 15 fyrirtæki nú merki Svansins.  Elva Rakel Jónsdóttir starfsmaður Svansins hjá Umhverfisstofnun afhenti leyfið á aðalfundi Félags ferðaþjónustubænda 23. mars sl.

Hótel Rauðaskriða

Hótel Rauðaskriða er sveitahótel staðsett í Aðaldal, Þingeyjasýslu við þjóðveg 85. Á hótelinu er gistiaðstaða fyrir rúmlega 60 manns. Hótel Rauðaskriða hefur lengi lagt áherslu á að minnka umhverfisáhrif af starfseminni en með Svansvottun er gengið enn lengra  og staðfest að Hótel Rauðaskriða er í fremsta flokki hvað varðar lágmörkun neikvæðra umhverfisáhrifa.

Svansmerking fyrir hótel

Allir gististaðir geta fengið Svansmerkið að því tilskildu að þeir uppfylli strangar kröfur Svansins. Nauðsynlegt er að vera með gott heildaryfirlit yfir umhverfisáhrif starfseminnar en Svansvottun tryggir meðal annars að.

  • Hótelið nær lágmarksviðmiðum er varðar orkunotkun, vatnsnotkun, efnanotkun og úrgangsmeðhöndlun.
  • Lögð er áhersla á að velja sem mest af umhverfismerktum vörum og þjónustu í innkaupum hótelsins.
  • Flokkun úrgangs sé góð og tryggt að allur hættulegur úrgangur fái rétta meðhöndlun.
  • Starfsmenn fái reglulega þjálfun og fræðslu.
  • Umhverfisstarfi hótelsins er stýrt á skilvirkan hátt.

Norræna umhverfismerkið Svanurinn

 Svanurinn er opinbert umhverfismerki Norðurlandannasem byggist á óháðri vottun og skilyrðum sem taka tillit til alls lífsferils vöru og þjónustu. Tilgangur Svansins er að ýta undir sjálfbæra þróun samfélagsins svo að komandi kynslóðir hafi jafna möguleika og við til að mæta þörfum sínum. Alls er hægt að votta um 70 mismunandi vöru- og þjónustuflokka.