Í Mývatnssveit og við Goðafoss

Gengið með landvörðum sumarið 2023 - Frítt að taka þátt

Fræðslutímabil landvarða í Mývatnssveit: 20. júní - 20. ágúst

Dimmuborgir, daglega kl. 10:00

Landverðir bjóða gestum í létta göngu um hinar einstöku hraunmyndanir Dimmuborga. Gestir fræðast um myndun borganna, lífríki svæðisins og rekast kannski á helli Þvörusleikis ef heppnin er með þeim.

Mæting: Við inngang Dimmuborga
Lengd göngu: 1 klst.

Kvöldganga við Kálfaströnd, daglega kl. 20:00

Njóttu kvöldsólarinnar á göngu með landverði. Í hinu friðsæla umhverfi Kálfastrandar fræða landverðir gesti um fuglalíf, nytjajurtir, vistkerfi og jarðmyndanir svæðisins.

Mæting: Við upplýsingaskilti á bílastæði Kálfastrandar
Lengd göngu: 1 klst.

Goðafoss, alla fimmtudaga kl. 13:00

Létt ganga með landverði um þennan sögufræga stað þar sem kynjamyndir og drunur frá fossinum magna upplifun og glæða söguna lífi.

Mæting: Bílastæði vestan Goðafoss
Lengd göngu: 1. klst.

Fræðsluganga á alþjóðlegum degi landvarða 31. júlí

Gangan verður auglýst nánar síðar.

Fræðsluganga á degi íslenskrar náttúru 16. september

Gangan verður auglýst nánar síðar