Stök frétt

Umhverfisstofnun hefur tekið ákvörðun um endurnýjun á starfsleyfi Tungusilungs ehf. vegna landeldis á allt að 200 tonnum af bleikju.

Tillaga að endurnýjuðu starfsleyfi var auglýst á tímabilinu 10. október til og með 8. nóvember 2022 þar sem hægt var að senda inn athugasemdir vegna hennar. Engin athugasemd barst vegna tillögunnar. Greinargerð vegna útgáfunnar fylgir aftast í starfsleyfinu, sbr. 6. gr. reglugerðar nr. 550/2018.

Ákvörðun Umhverfisstofnunar er um endurnýjunina er kæranleg til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála innan eins mánaðar frá birtingu ákvörðunar stofnunarinnar skv. 1. mgr. 65. gr. laga nr. 7/1998, um hollustuhætti og mengunarvarnir, sbr. 4. gr. laga nr. 130/2011, um úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála.

Tengd skjöl
Ákvörðun um útgáfu á endurnýjuðu starfsleyfi Tungusilungs ehf.
Starfsleyfi Tungusilungs ehf.