Stök frétt


Umhverfisstofnun hefur unnið tillögu að starfsleyfi fyrir Fjallalax ehf. (áður Fjallableikja ehf.). Um er að ræða landeldi á laxfiskum að Hallkelshólum, Grímsnes- og Grafningshreppi, þar sem hámarks lífmassi á hverjum tíma má ekki fara yfir 100 tonn. Rekstaraðili hefur verið með starfsleyfi til framleiðslu á 20 tonnum af bleikju á ári.

Framkvæmdin fór í matsskyldu fyrirspurn til Skipulagsstofnunar sem birti ákvörðun sína þann 19. október 2021 að hún þyrfti ekki í mat. Umhverfisstofnun veitti umsögn í því ferli og gerir ekki athugasemdir við þá niðurstöðu.

Að mati Umhverfisstofnunar munu helstu áhrif vera í formi aukins magns næringarefna bæði á föstu formi og uppleystu sem munu verða losuð í viðtakann. Áætluð losun næringarefna verður undir þeim mörkum sem almennt er miðað við varðandi losun í ferskvatn. Rekstaraðili mun samhliða auknu eldi auka hreinsun frárennslis með tromlusíum auk settjarna sem fyrir eru. Í starfsleyfi eru ákvæði þar sem hægt er að gera aukna kröfu um hreinsun fari rekstaraðili yfir þau mörk sem sett hafa verið í leyfið.
Athugasemdir við starfsleyfistillöguna skulu vera skriflegar og sendar Umhverfisstofnun (ust@ust.is) merkt UST202001-206, athugasemdir verða birtar við útgáfu nema annars sé óskað.

Frestur til að skila inn athugasemdum er til og með 4.janúar 2021. Greinargerð mun fylgja starfsleyfi við útgáfu sbr. 6. gr. reglugerðar nr. 550/2018.

Tengd skjöl:
Umsókn um starfsleyfi – Fjallalax ehf. (Fjallableikja ehf.)
Tillaga að starfsleyfi Fjallalax ehf. Hallkelshólum
Ákvörðun um matsskyldu - Skipulagsstofnun