Stök frétt


Umhverfisstofnun auglýsir framlengingu á starfsleyfi vegna landeldis Tungusilungs ehf. í Tálknafirði. Starfsleyfi rekstaraðila er í vinnslu sem mun ekki ljúka áður en leyfi rennur út. Umhverfisstofnun er heimilt að framlengja starfsleyfi rekstaraðila í samræmi við 4. mgr. 6. gr. laga 7/1998 um hollustuhætti og mengunarvarnir. Framlengingin á starfsleyfi er heimil til eins árs og gildir til 11. desember 2022 eða þar til nýtt starfsleyfi hefur verið gefið út.

Athugasemdir við að leyfið sé framlengt skulu vera skriflegar og sendar Umhverfisstofnun (ust@ust.is) merkt UST202001-206. Frestur til að skila inn athugasemdum er til og með 9. desember 2021.

Hér er hægt að skoða starfsleyfið sem framlengt er um eitt ár.