Stök frétt

Umhverfisstofnun hefur fallist á að framlengja gildistíma starfsleyfis Matfugls ehf. að Hurðarbaki í Hvalfjarðarsveit. Starfsleyfið var gefið út af Heilbrigðiseftirliti Vesturlands 18. desember 2008 með gildistíma til 18. desember 2020.

Útgefanda starfsleyfis er heimilt að framlengja starfsleyfi með þessum hætti skv. 4. mgr. 6. gr. laga nr. 7/1998 um hollustuhætti og mengunarvarnir að hámarki til eins árs, á meðan nýtt starfsleyfi er í vinnslu, hafi fullnægjandi umsókn um nýtt starfsleyfi borist útgefanda.

Fullnægjandi umsókn um nýtt starfsleyfi hefur borist og nýr gildistími starfsleyfisins er til 18. desember 2021.
Ákvörðun Umhverfisstofnunar um framlengingu á gildistíma starfsleyfisins er kæranleg til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála innan eins mánaðar frá birtingu ákvörðunar, skv. 65. gr. laga nr. 7/1998, sbr. 4. gr. laga nr. 130/2011.

Tengd skjöl:
Ákvörðun um framlengingu starfsleyfis
Starfsleyfi Matfugls ehf, Hurðarbaki