Stök frétt

Umhverfisstofnun hefur borist umsókn um starfsleyfi vegna stækkunar olíubirgðastöðvar EBK ehf. á Keflavíkurflugvelli en rekstraraðili hyggst bæta við nýjum geymi á flugvallarsvæðinu fyrir flugvélaeldsneyti.

Unnið er úr umsókn og að gerð starfsleyfistillögu.

Tillaga að starfsleyfi verður auglýst opinberlega þegar hún liggur fyrir og gefst þá öllum tækifæri að koma með athugasemdir áður en ákvörðun um útgáfu starfsleyfisins verður tekin.