Stök frétt

Umhverfisstofnun hefur móttekið umsókn um starfsleyfi frá  Veiðifélagi Eystri-Rangár , umsóknin snýr að landeldi á 20 tonnum að Eyjarlandi í Bláskógarbyggð. 

Tillaga að starfsleyfi verður auglýst opinberlega þegar hún liggur fyrir og gefst þá öllum tækifæri að koma með athugasemdir áður en ákvörðun um útgáfu starfsleyfisins verður tekin.