Stök frétt

Umhverfisstofnun hefur móttekið umsókn um starfsleyfi dagsett þann 7. febrúar 2020 frá fyrirtækinu Stofnfiskur hf. Starfsleyfisumsókn snýr að eldi í Seljavogi á Reykjanesi, en rekstraraðili sækir einnig um starfsleyfi í Kirkjuvogi í Höfnum á Reykjanesi, samhliða umsókninni. Stofnfiskur hf. sækir um starfleyfi fyrir 20 tonn/ ári í Seljavogi en um er að ræða tilrauna- og sóttkvíastöð blendings laxaseiða, 1 tonn af laxi og 19 tonn af hrognkelsis klakfiski.

Samkvæmt mati á umhverfisáhrifum kemur fram að samgangur verður á milli stöðvanna í Seljavogi og Kirkjuvogi, en stöðvarnar sækja um tvö aðskilin starfsleyfi.
Unnið er úr umsókn og aðgerð starfsleyfistillögu. 

Tillaga að starfsleyfi verður auglýst opinberlega þegar hún liggur fyrir og gefst þá öllum tækifæri að koma með athugasemdir áður en ákvörðun um útgáfu starfsleyfisins verður tekin. 
Ákvörðun um matskyldu er hægt að finna hér:

Mat á umhverfisáhrifum - matsskyldufyrirspurn