Stök frétt

Umhverfisstofnun auglýsir tillögu að breytingum á starfsleyfi Als álvinnslu ehf. Fyrirhugað er að gera ýmsar breytingar á starfsleyfinu og er starfsleyfið því endurskrifað eins og um nýtt starfsleyfi væri að ræða.

Gert er ráð fyrir að heimilað verði að vinna ál úr allt að 10.000 tonnum á ári af álgjalli sem til fellur hjá álverum. Í eldra starfsleyfi var eingöngu gefin heimild til að vinna ál úr álgjalli með saltferli (með íblöndun salts (Na og K söltum)) en í tillögu að nýju starfsleyfi er gert ráð fyrir að heimilt sé að vinna með saltlausum ferli.

Breytingartillagan felur í sér að uppfyllt eru skilyrði 14. gr. reglugerðar nr. 550/2018 um að taka tillit til allra nýrra eða uppfærðra BAT-niðurstaðna, í þessu tilfelli niðurstaðna um bestu aðgengilega tækni vegna iðnaðar með járnlausan málm. Þetta felur í sér allmargar breytingar á starfsleyfisskilyrðum og vöktun til samræmis við reglur á Evrópska efnahagssvæðinu.

Tillagan ásamt umsókn rekstraraðila verður aðgengileg á vefsíðu Umhverfisstofnunar á tímabilinu 7. júlí til og með 8. ágúst 2022. Athugasemdir við starfsleyfistillöguna skulu vera skriflegar og sendar Umhverfisstofnun (ust@ust.is) merktar UST202008-210. Umsagnir skulu vera á íslensku og öllum er heimilt að senda umsögn. Umsagnir verða birtar við útgáfu nema annars sé óskað. Frestur til að skila umsögnum er til og með 8. ágúst 2022.

 

Tengd skjöl:

Alur álvinnsla - auglýst tillaga

Starfsleyfisumsókn

Skýringarmynd af vinnsluferli Als Álvinnslu

Alur - Grunnástandsskýrsla lóðar