Stök frétt

Þann 3. apríl sl. sendi Skaftárhreppur Umhverfisstofnun erindi þar sem óskað var eftir breytingu á starfsleyfi sveitarfélagsins fyrir urðunarstaðinn á Stjórnarsandi. Var óskað eftir breytingu á gr. 1.2 á þann veg að heimilað yrði að geyma hjólbarða á svæðinu.

Sérfræðingar munu nú hefja vinnu við breytingu starfsleyfisins í samræmi við ósk umsækjanda en reglugerðartilvísanir verða einnig uppfærðar. Hið breytta starfsleyfi verður svo auglýst opinberlega í fjórar vikur og verður almenningi gefin kostur á að koma með athugasemdir.